Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 29. maí 2017 21:51
Lilja Dögg Valþórsdóttir
Natalia: Vissum að við værum betri en Stjarnan
Natalia í leik með Þór/KA.
Natalia í leik með Þór/KA.
Mynd: Fótbolti.net - Einar Ásgeirsson
„Stjarnan er með frábært lið og við vissum það þegar við fórum í leikinn en við vissum að við værum betri," sagði Natalia Gomez miðjumaður Þórs/KA við Fótbolta.net eftir 1-3 sigur liðsins á Stjörnunni í toppslag Pepsi-deildar kvenna í kvöld.

Lestu um leikinn: Stjarnan 1 -  3 Þór/KA

„Við höfum átt góða leiki undanfarið og þetta var mjög góð frammistaða allra. Þetta var góð liðsframmistaða og við sýndum góðan karakter með því að skora þrjú mörk eftir að við fengum mark á okkur. Við erum mjög ánægðar og verðum bara að taka einn leik í einu."

Leikurinn fór illa af stað fyrir Þór/KA því Stjarnan komst yfir strax á þriðju mínútu með marki Öglu Maríu Albertsdóttur. En óttaðist Natalia ekki að þetta færi illa eftir það?

„Við fengum mark á okkur snemma en ég hugsaði bara að við ættum 85 mínútur til að svara þessu. Strax eftir markið fengum við svo fimm hornspyrnur og ég óttaðist ekkert. Mér fannst þetta bara spurning um hvenær við myndum skora og svo gerðum við það. Við sýndum frábæran karakter."

Nánar er rætt við hana í sjónvarpinu hér að ofan en þar ræðir hún um næsta mótherja liðsins sem er Breiðablik í Borgunarbikarnum á laugardaginn.
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner