Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
   mán 29. maí 2017 22:04
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Orri: Ég er hrikalega ánægður
Orri var ánægður með sigur FH í kvöld
Orri var ánægður með sigur FH í kvöld
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Orri Þórðarson, þjálfari FH var gríðarlega ánægður með sigur sinna kvenna gegn Grindavík í kvöld.

„Ég er hrikalega ánægður. Þetta var algjör baráttusigur og gríðarlega mikilvægur leikur. Við skoruðum mjög snemma og vorum aðeins betri til að byrja með en svo voru þær sterkari," sagði Orri.

Jafnt var í hálfleik, 1-1 en FH kom af miklum krafti inn í síðari hálfleikinn og skoruðu tvö mörk á skömmum tíma.

„Við töluðum um það ef að við ætluðum að vinna þennan leik þá þyrftum við að vera miklu grimmari. Þær voru grimmari í fyrri hálfleik og mér fannst það snúast við. Þetta var æðislegur sigur."

Fyrir tímabilið var FH spáð 8. sæti og fallbaráttu af fótbolta.net en með sigrinum komust þær sex stigum frá Grindavík sem er í 7. sæti deildarinnar og er FH nú komið í góða fjarlægð frá fallsvæðinu.

„Það er fínt að fá smá fjarlægð en við bara viljum safna miklu fleiri stigum og við hefðum hæglega getað verið með fleiri stig. Við ætlum bara að halda áfram, við erum ekkert hætt."
Athugasemdir
banner
banner
banner