Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. maí 2017 14:00
Magnús Már Einarsson
Terry ekki búinn að ákveða neitt
Kóngurinn á Stamford Bridge er að kveðja.
Kóngurinn á Stamford Bridge er að kveðja.
Mynd: Getty Images
John Terry segist ekki vera búinn að ákveða hvað tekur næst við hjá sér á ferlinum.

Hinn 36 ára gamli Terry hefur leikið með Chelsea alla tíð en hann er á förum frá félaginu.

Terry hefur verið orðaður við Swansea, WBA og Bournemouth sem og félög í Kína og Bandaríkjunum. Terry segist ekki vera búinn að ákveða neitt en hann gæti líka lagt skóna á hilluna.

„Ég er með nokkra möguleika en það er ekkert klárt," sagði Terry.

„Allir eru að spyrja mig og enginn trúir mér þegar ég segi að það er ekkert klárt."
Athugasemdir
banner
banner
banner