Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. maí 2017 11:30
Magnús Már Einarsson
Valverde tekur við Barcelona í dag
Ernesto Valverde.
Ernesto Valverde.
Mynd: Getty Images
Ernesto Valverde verður líklega ráðinn þjálfari Barcelona síðar í dag en fjölmiðlar á Spáni greina frá þessu.

Hinn 53 ára gamli Valverde tekur við af Luis Enrique sem tilkynnti í mars að hann myndi hætta eftir tímabilið.

Enrique stýrði Barcelona til sigurs í bikarúrslitum gegn Alaves um helgina í lokaleik sínum.

Valverde hefur undanfarin fjögur ár þjálfað Athletic Bilbao en hann hætti störfum þar í síðustu viku.

Valverde spilað með Barcelona frá 1988 til 1990 en líklegt er að hann verði kynntur sem þjálfari hjá félaginu í kvöld.
Athugasemdir
banner
banner
banner