Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. júní 2015 10:00
Magnús Már Einarsson
Birkir gæti samið við Torino í dag
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason gæti gengið í raðir Torino í dag samkvæmt fréttum frá Ítalíu.

Pescara hefur samykkt tilboð frá Torino í Birki en það hljóðar upp á eina milljón evra.

Birkir fer í læknisskoðun hjá Torino í dag og í kjölfarið gæti hann skrifað undir hjá félaginu.

Birkir skoraði tíu mörk í Serie B á síðasta tímabili og mörg félög höfðu áhuga á að fá hann í sínar raðir.

Torino virðist nú hafa unnið kapphlaupið um Birki en liðið endaði í níunda sæti í Serie B á síðasta tímabili.
Athugasemdir
banner
banner