Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. júní 2015 17:16
Magnús Már Einarsson
Joe Funicello aðstoðar BÍ/Bolungarvík
Joe í leik með Þór.
Joe í leik með Þór.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Joe Funicello, fyrrum leikmaður Þórs, verður BÍ/Bolungarvík til aðstoðar næsta mánuðinn.

Joe, sem spilaði með Þór frá 2010-2013, mun aðstoða Jón Hálfdán Pétursson þjálfara BÍ/Bolungarvíkur tímabundið.

„Hann er í heimsókn í mánuð og bauð fram aðstoð sína á meðan hann er hér," sagði Samúel Samúelsson formaður BÍ/Bolungarvíkur.

„Við sjáum til hvað gerist eftir það. Ef þetta hjálpar eitthvað þá skoðum við hvort það sé hægt að halda honum lengur."

Nigel Quashie var áður spilandi aðstoðarþjálfari hjá BÍ/Bolungarvík en hann hætti í vor og einbeitir sér nú að þjálfun yngri flokka á Vestfjörðum.

BÍ/Bolungarvík er í botnsætinu í 1. deildinni með þrjú stig en stefnt er á að fá liðsstyrk í júlí.
Athugasemdir
banner
banner
banner