Jóhann Kristinn Gunnarsson, þjálfari Þór/KA var nokkuð ánægður þrátt fyrir 2-0 tap síns liðs gegn Breiðablik í dag.
Blikar unnu leikinn með mörkum Fanndísar Friðriksdóttur og Telmu Hjaltalín Þrastardóttur.
Jóhann viðurkennir að Breiðablik hafi verið betra liðið í leiknum en segir 2-0 forrysta í hálfleik vera fullstóra.

Lestu um leikinn: Breiðablik 2 - 0 Þór/KA
„Ég hugsa að heilt yfir hafi þær verið betri í þessum leik en það er svekkjandi hvernig forrystan verður til og mér fannst ósanngjarnt að fara 2-0 undir í hálfleik."
Jóhann er sáttur með ansi margt þrátt fyrir tap.
„Ég er sérstaklega ánæður með þá hluti sem við ætluðum að laga, að láta ekki atvik í leik hafa áhrif á okkur og halda karakter."
„Ég er heilt yfir, þrátt fyrir tap, ánægður í dag að langflestu leiti."
Breiðablik fékk vítí í fyrri hálfleik en Jóhann segir sitt lið einnig hafa átt að fá víti.
„Nei, alls ekki einstaklingsmistök breyta leikjum, alveg eins og mörk, þar gerum við ein slík. Við áttum að fá víti líka sem var augljóslega tekið af okkur."
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir