Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. júní 2015 20:00
Daníel Freyr Jónsson
Phil Jones framlengir hjá Manchester United
Phil Jones.
Phil Jones.
Mynd: Getty Images
Varnarmaðurinn Phil Jones hefur ritað nafn sitt á nýjan fjögurra ára samning hjá Manchester United. Er hann því samningsbundinn liðinu til ársins 2019.

Þrátt fyrir ungan aldur hefur hinn 23 ára gamli Jones þegar spilað 128 úrvalsdeildarleiki með United, en hann kom til liðsins frá uppeldisfélagi sínu Blackburn árið 2011.

Phil er nokkuð ungur varnarmaður sem er stöðugt að bæta leik sinn. Hann missti dálítið úr á síðustu leiktíð vegna meiðsla en ég var hrifin af fagmennsku hans og viðhorfi í gegnum þá tíma," sagði Louis Van Gaal, stjóri United um Jones.

Jones varð enskur meistari með United árið 2013 og hefur hann myndað öflugt miðvarðapar ásamt Chris Smalling hjá félaginu.
Athugasemdir
banner