Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júní 2016 12:00
Magnús Már Einarsson
Heimir: Á Íslandi skiptum við um treyjur eftir þrjú gul
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Heimir Hallgrímsson, landsliðsþjálfari, var hress á fréttamannafundi íslenska landsliðsins í dag.

Eftir að Lars Lagerback hafði rætt um gul spjöld og leikbönn kom Heimir með skemmtilegt innlegg.

Í deildarkeppni á Íslandi fara leikmenn í bann eftir fjögur gul spjöld og Heimir grínaðist með það að leikmenn á Íslandi noti sérstakt bragð til að sleppa við leikbönn.

„Á Íslandi þegar einhver var á þremur gulum spjöldum þá skiptumst við bara á treyjum og enginn vissi hver átti að fá spjaldið," sagði Heimir og uppskar hlátur frá fréttamönnum.

Heimir var þó fljótur að leiðrétta fyrir erlenda fjölmiðla að um grín hefði verið að ræða.
Athugasemdir
banner
banner
banner