Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 29. júní 2016 20:53
Arnar Geir Halldórsson
Nathan Ake lánaður til Bournemouth (Staðfest)
Leikur með Bournemouth næsta vetur
Leikur með Bournemouth næsta vetur
Mynd: Getty Images
Hollenska ungstirnið Nathan Ake hefur verið lánaður frá Chelsea til Bournemouth.

Þessi 21 árs gamli leikmaður eyddi síðustu leiktíð á láni hjá Watford þar sem hann lék 24 leiki í ensku úrvalsdeildinni.

Ake hefur leikið fyrir öll yngri landslið Hollands en hann var valinn efnilegasti leikmaður Chelsea árið 2013. Þrátt fyrir það hefur honum ekki tekist að brjóta sér leið inn í aðallið félagsins.

Bournemouth voru nýliðar í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og héldu sæti sínu meðal þeirra bestu með því að enda í 16.sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner