Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   mið 29. júní 2016 13:30
Elvar Geir Magnússon
Ný kærasta Dele Alli huggaði hann eftir Íslandsleikinn
Mynd: Getty Images
Dele Alli, stjarna hjá Tottenham, hafði hægt um sig á Evrópumótinu í Frakklandi og fann sig engan veginn þegar England tapaði gegn Íslandi í 16-liða úrslitum.

Talað hefur verið um eitt mest niðurlægjandi tap Englands á stórmóti.

Eftir leikinn fékk Alli huggun frá kærustu sinni og ljósmyndarar á leiknum voru á tánum.

Samband Alli og þessarar nýju kærustu, fyrirsætunnar Ruby Mae, hefur ekki farið hátt og þessi tvítugi miðjumaður ekki birt myndir af þeim saman á samskiptamiðlum.

Þau tvö fá nú tíma saman þar sem enska landsliðið olli enn og aftur vonbrigðum á stórmóti.





Athugasemdir
banner
banner
banner