Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
Bestur í Mjólkurbikarnum: Vakinn með símhringingu - „Á Jölla mikið að þakka"
Sigdís Eva: Vissum að við gætum þetta og sýndum það í leiknum
Pétur: Það var ekkert lið inni á vellinum
John Andrews: Vorum að spila gegn líklega besta liði landsins
Kallaði þetta gott eftir fimm hnéaðgerðir og fær góð ráð frá pabba sínum
Þurfti að róa Pablo eftir leik - „Leikmenn eiga ekki að skipta sér af áhorfendum“
„Ef þetta heldur svona áfram verða bara allir í banni eftir smá stund"
Hefði sætt sig við jafntefli - „Ég held að við höfum reynt 5 eða 6 plön í þessum leik“
Alex Freyr ósáttur: Þetta er bara sorglegt
Eysteinn á von á geggjuðum leik - „Jölli er alltaf Jölli í Portúgal"
Arnór Smára: Hafði persónulega mikla þýðingu fyrir mig
Draumadráttur Jökuls: Augnablik á stóran hluta af mínu hjarta og mun alltaf gera
Kjartan Henry: Hallgrímur sá ekki til sólar eftir það
Var vítaspyrnudómurinn í Árbæ rangur?
Lék sinn fyrsta leik í efstu deild og vildi víti - „Fann fyrir snertingu og lét mig detta"
Líður eins og Valsarar hafi tapað leiknum - „Hafði aldrei trú á því að hann væri að fara skora"
Arnar Grétars: Gerði mikið fyrir okkur að vera með frábæran markmann
Svekktur yfir því að vinna ekki Val - „Mjög dapurt víti, svo við tölum hreint út“
Jón Þór: Bíð jafn spenntur og þú
Viktor Jóns: Get skorað mörk hvar sem er
banner
   mið 29. júní 2016 19:08
Arnar Daði Arnarsson
Valsvellinum
Óli Brynjólfs: Frábært frá fremsta manni til aftasta
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Ólafur Brynjólfsson þjálfari kvennaliðs Vals í Pepsi-deild kvenna var virkilega ánægður með sigur sinna stelpna á Þór/KA í 6. umferð deildarinnar í dag.

Öruggur og sanngjarn 6-1 sigur Vals staðreynd sem var síst of stór miðað við gang leiksins. Valur fer þar með uppfyrir Þór/KA í deildinni með sigrinum.

Lestu um leikinn: Valur 6 -  1 Þór/KA

„Þetta var mun auðveldari sigur en ég átti von á. Við spiluðum auðvitað ótrúlega vel og létum boltann ganga. Við vorum mjög hættulegar og sköpuðum okkur rosalega mikið af færum. Heilt yfir er ég gríðarlega ánægður með stelpurnar, hvernig við spiluðum þennan leik og allar lögðu sig fram."

„Ef það er eitthvað, þá er það það, að færanýtingin var ekki nægilega góð. Að sama skapi fannst mér Þór/KA liðið sem er með mjög sterkt lið að það er einhver þreyta sem sest þar á. Það hjálpaði okkur," sagði Ólafur sem gat verið nokkuð sammála því að þetta hafi verið besti leikur liðsins í sumar.

„Þetta datt inn núna. Við höfum verið ágætar í sumar. Við höfum kannski ekki verið að skora úr færum og fengið á okkur óheppin mörk en í dag var þetta frábært frá fremsta manni til aftasta."

Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner