„Þetta var ekki auðveldur leikur en við vorum heilt yfir að spila hann vel og mér fannst þetta sannfærandi sigur," sagði Þorsteinn H Haldórsson, þjálfari Breiðabliks eftir 4-0 sigur á ÍBV í dag.
Lestu um leikinn: ÍBV 0 - 4 Breiðablik
„Þú vilt alltaf vera kominn með tveggja marka forystu en mér fannst við spila seinni háfleikinn mjög agað og skipulega og við nýttum færin okkar mjög vel," sagði Þorsteinn.
Mörk í öllum regnbogans litum voru skoruð í leiknum.
„Aukaspyrnan var mjög flott í fyrri hálfleik og erfitt að verja hana. markið hjá Fanndísi var virkilega gott og svo skotfyrirgjöfin frá Svövu eða hvað þetta var. Síðasta markið var klaufalegast,"
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum að ofan.
Athugasemdir