Danska knattspyrnuliðið Bröndby mætir Valsmönnum í Evrópudeildinni á morgun en leikið verður á Valsvellinum. Um 200 stuðningsmenn danska liðsins mæta á leikinn.
Stuðningsmenn Bröndby eru rómaðir fyrir mikið líf í stúkunni og má því búast við látum frá þeim annað kvöld.
Í tilkynningu sem Valsmenn fengu frá danska félaginu segir að stuðningsmenn muni mæta með fána og fleira tilheyrandi í stúkuna. Það eina sem þurfi að passa sé að þeir komist ekki með flugelda inn á völlinn en það hafi stundum gerst í gegnum tíðina.
Við hvetjum Valsmenn að sjálfsögðu til að fjölmenna á leikinn enda má búast við mikilli stemmingu,
Athugasemdir