Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. júlí 2014 22:51
Magnús Már Einarsson
Heimild: Heimasíða Helsingborg 
Hólmar Örn á reynslu hjá Helsingborg
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Hólmar Örn Eyjólfsson.
Mynd: Getty Images
Hólmar Örn Eyjólfsson mun á morgun mæta til Svíþjóðar þar sem hann verður til reynslu hjá Helsingborg næstu dagana. Þetta kemur fram á heimasíðu sænska félagsins.

Hólmar er án félags í augnablikinu eftir að hafa leikið með Bochum síðan árið 2011.

Þar áður var Hólmar á mála hjá West Ham á Englandi í þrjú ár en hann er uppalinn í HK.

Hólmar er 23 ára gamall en hann á einn A-landsleik að baki og 27 leiki með U21 árs landsliði Íslands.

Arnór Smárason leikur með Helsingborg en liðið er í 11. sæti deildarinnar með 17 stig eftir 16 umferðir.
Athugasemdir
banner
banner
banner