Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 29. júlí 2014 16:22
Magnús Már Einarsson
Indriði Áki í FH (Staðfest)
Heimir Guðjónsson þjálfari FH og Indriði Áki.
Heimir Guðjónsson þjálfari FH og Indriði Áki.
Mynd: FH
FH hefur fengið sóknarmanninn Indriða Áka Þorláksson til liðs við sig frá Val. Indriði Áki skrifaði undir þriggja ára samning við FH nú sídðegis.

Indriði er fæddur árið 1995 en hann hefur skorað níu mörk í 29 deildar og bikarleikjum með Val.

FH hefur misst framherjana Albert Brynjar Ingason og Kristján Gauta Emilsson í þessum mánuði.

Albert Brynjar gekk til liðs við Fylki á meðan Kristján Gauti samdi við NEC Nijmegen í Hollandi.

Til að styrkja sóknarleikinn kom Steven Lennon frá Sandnes Ulf fyrir helgi og nú er Indriði Áki einnig kominn til FH.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner