Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 29. júlí 2014 06:00
Fótbolti.net
KB bætir við sig þremur mönnum (Staðfest)
Pétur í leik með Leikni í 1. deildinni í fyrra.
Pétur í leik með Leikni í 1. deildinni í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Knattspyrnufélag Breiðholts hefur bætt við sig þremur leikmönnum sem verða með liðinu í kvöld þegar það mætir Augnabliki í 4. deildinni.

KB reynir að komast í úrslitakeppnina en leikurinn gegn Augnabliki í kvöld er gríðarlega mikilvægur í þeirri baráttu.

KB er tengslafélag Leiknis en tveir af nýju mönnunum eru uppaldir Leiknismenn og búa yfir góðri reynslu; það eru Ólafur Jónsson og Pétur Örn Svansson sem báðir eru fæddir 1984.

Ólafur tekur skóna fram að nýju en hann lék með KB 2011. Pétur á fjölmarga leiki að baki í 1. deild með Leikni og Víkingi Reykjavík en í fyrra spilaði hann 17 leiki með Leikni í 1. deildinni. Það sem af er sumri hefur hann leikið með Lummunni.

Þá hefur KB einnig fengið Brasilíumanninn Kwami Obaioni Silva Santos sem hefur leikið með Erninum í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner