Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   þri 29. júlí 2014 15:00
Magnús Már Einarsson
Ronaldinho semur við nýtt félag á morgun
Ronaldinho.
Ronaldinho.
Mynd: Getty Images
Ronaldinho mun ganga til liðs við nýtt félag á morgun en hann hefur rift samningi sínum við Atletico Mineiro í Brasilíu

Ronaldinho, sem var valinn bestur í heimi árið 2004 og 2005, er ekki á þeim buxunum að leggja skóna á hilluna á næstu árum en hann er orðinn 34 ára gamall.

,,Hann mun spila þar til hann verður 42 ára. Hann mun greina frá næsta áfangastað á miðvikudag," sagði Roberto de Assis bróðir og umboðsmaður Ronaldinho.

Líklegast þykir að Ronaldinho fari til Boca Juniors í Argentínu til að leysa Juan Roman Riquelme af hólmi en hann gekk á dögunum í raðir Argentinos Juniors.
Athugasemdir
banner
banner
banner