Atli Freyr Ottesen Pálsson hefur gengið til liðs við Gróttu á láni frá Stjörnunni.
Atli Freyr er tvítugur kantmaður en hann spilaði átta leiki með Stjörnunni þegar liðið varð Íslandsmeistari í fyrra.
Atli Freyr er tvítugur kantmaður en hann spilaði átta leiki með Stjörnunni þegar liðið varð Íslandsmeistari í fyrra.
Í ár hefur Atli Freyr komið við sögu í tveimur leikjum í Pepsi-deildinni með Stjörnunni.
Hann mun nú hjálpa Gróttu í botnbaráttunni í 1. deildinni en liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar, fjórum stigum frá öruggu sæti.
Fyrsti leikur Atla með Gróttu verður gegn Grindavík á Seltjarnarnesi í kvöld.
Athugasemdir