„Við erum alveg hrikalega svekktir. Frábært vinnu framlag minna manna á móti úrvals deildarliði sem er að demba sér í toppbaráttu þar.“ Sagði Bjarni Jóhannson þjálfari KA eftir 4-6 tap í vítaspyrnukeppni gegn Val.
Lestu um leikinn: KA 4 - 6 Valur
„Þetta gat alveg klárast í venjulegum leiktíma. Framlengingin var þung og svo er þetta eitt víti sem skilur að“
„Mér fannst vera brotið á Rajko og hann algjörlega hindraður þarna. Frá mér séð var þetta svo augljóst. Síðan vorum við sviknir á víti. Það er klárt“
Bjarni vildi fá víti þegar boltinn fór í hönd Ian williamson snemma í seinni hálfleik „Common maður það vantar smá kjark. Svona atriði duttu ekki með okkur í dag og þess vegna er þetta enn meira svekkjandi.“
Nánar er rætt við Bjarna í spilaranum fyrir ofan
Athugasemdir