„Þetta var frábært að ná loksins að klára leik, að vera ekki bara að vinna með einu marki eða tveimur, heldur bara slátra liðum. Það var kominn tími á það að fara aðeins að laga markatöluna,” sagði Jóhann Helgi Hannesson leikmaður Þórs eftir 6-1 sigur á BÍ/Bolungarvík nú í kvöld.
Lestu um leikinn: Þór 6 - 1 BÍ/Bolungarvík
„Maður fer í alla leiki til að vinna þá. Við erum búnir að taka þrjá leiki í röð og spilamennskan er bara búin að vera flott, nema kannski seinni hálfleikurinn á móti Fram. Við erum allavega að bæta okkar leik og við erum búnir að vera flottir núna í seinni umferðinni.”
„Þetta er mjög flott lið og það er oft mjög erfitt ef það er búið að ganga vel að mæta svo liðum sem eru í neðri hlutanum, að berjast fyrir lífi sínu. Þau koma oft mjög grimm til leiks og þá þurfum við bara að match-a þau í baráttunni og þá taka gæðin yfir.”
Viðtalið í heild sinni má sjá hér að ofan.
Athugasemdir