Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. júlí 2016 19:15
Ívan Guðjón Baldursson
Andre Gomes: Ronaldo óskaði mér til hamingju
Andre Gomes í leik með Valencia.
Andre Gomes í leik með Valencia.
Mynd: Getty Images
Andre Gomes segir að landsliðsfélagi hans Cristiano Ronaldo hafi óskað sér til hamingju með að vera kominn til Barcelona.

Portúgalski miðjumaðurinn gekk til liðs við Börsunga, frá Valencia, í vikunni og mun því spila með erkifjöndum Ronaldo og félaga í Real Madrid.

„Ég talaði við Cristiano Ronaldo. Hann óskaði mér til hamingju og sagðist vera ánægður fyrir mína hönd, en ég er áfram andstæðingur hans rétt eins og ég var hjá Valencia. Það er engin vinátta þegar leikurinn er flautaður á," sagði Gomes við TV3.

„Ég nýt þess að spila með honum með portúgalska landsliðinu en núna hlakka ég mest til að byrja að spila með Messi."

Gomes og Ronaldo unnu Evrópumótið í Frakklandi saman og það verður áhugavert að sjá hvernig Portúgalanum mun ganga hjá sínu nýja félagi þar sem hann berst við menn á borð við Sergio Busquets, Ivan Rakitic og Sergi Roberto um byrjunarliðssæti.
Athugasemdir
banner
banner