Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   fös 29. júlí 2016 09:45
Magnús Már Einarsson
Brad Guzan til Middlesbrough (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Middlesbrough hefur fengið bandaríska markvörðinn Brad Guzan í sínar raðir.

Hinn 31 árs gamli Guzan krotaði undir tveggja ára samning hjá nýliðum Boro.

Hann kemur frítt til Middlesbrough eftir að samningur hans við Aston Villa rann út.

Hjá Boro munu Guzan berjast við Victor Valdes um sæti í byrjunarliðinu.

Aitor Karanka, stjóri Boro, er á fullu að styrkja hópinn fyrir úrvalsdeildina en Guzan er áttundi leikmaðurinn sem kemur til félagsins í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner