Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   fös 29. júlí 2016 14:06
Ívan Guðjón Baldursson
Guðmundur Böðvar til ÍA (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski
Miðjumaðurinn Guðmundur Böðvar Guðjónsson er kominn aftur til uppeldisfélags sins ÍA á lánssamning frá Fjölni.

Guðmundur er 27 ára gamall og lék yfir 90 leiki fyrir ÍA áður en hann gekk til liðs við Fjölni fyrir þremur árum.

Guðmundur hefur leikið yfir 70 leiki fyrir Fjölni og var fastamaður í byrjunarliðinu þar til í sumar.

Guðmundur, sem skrifaði undir tveggja ára samning við Fjölni síðastliðinn nóvember, hefur spilað sjö leiki á tímabilinu, sex í deild og einn í bikar.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner