Eins og við höfum áður greint frá hóf knattspyrnumaðurinn Atli Sigurjónsson nýverið sölu á hárteygjum en allur ágóði sölunnar rennur til Styrktarfélags krabbameinssjúkra barna.
Það er óhætt að segja að teygjurnar hafi fengið góðar móttökur í knattspyrnuheiminum og meðal þeirra sem notast við teygjurnar má nefna landsliðskonuna Fanndísi Friðriksdóttur, markahrókinn Gary Martin auk auðvitað Atla, sem leikur með Breiðablik í Pepsi deildinni.
Einnig eru nokkur dæmi um að heilu liðin hafi fjárfest í teygjunum. Eitt af þeim liðum er kvennalið HK/Víkings eins og sjá má hér fyrir neðan.
Sport teygjur eru fyrir stelpur og stráka, konur og karla í öllum íþróttum, líkamsrækt eða bara hvar sem er.
Smelltu hér til að fara á Facebook síðuna hjá Sport teygjum
Sjá einnig
Atli Sigurjóns styrkir börn með krabbamein
Athugasemdir