Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. júlí 2016 13:36
Ívan Guðjón Baldursson
Ingólfur semur um starfslok við Fram (Staðfest)
Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson
Ingólfur Sigurðsson hefur samið um starfslok við Fram.

Ingólfur hefur ekki komið við sögu hjá Fram eftir að hafa æft með hollenska B-deildarliðinu FC Volendam fyrr í mánuðinum.

Fram að þeim tíma hafði hann spilað 7 leiki og skorað eitt mark fyrir Safamýraliðið.

Ingólfur var einn fjölmargra leikmanna sem gengu í raðir Fram síðasta vetur en hann kom þaðan frá Víkingi Ólafsvík sem vann 1. deildina með miklum yfirburðum. Þar lék Ingólfur 21 leik og skoraði 6 mörk.

Fram er í 7. sæti í Inkasso-deildinni en þeir unnu 2-1 sigur á Þór í síðasta leik fyrir Verslunarmannahelgina.
Athugasemdir
banner
banner
banner