Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   fös 29. júlí 2016 09:00
Ívan Guðjón Baldursson
Milik í læknisskoðun hjá Napoli
Mynd: Getty Images
Pólski framherjinn Arkadiusz Milik er við það að ganga til liðs við ítalska stórliðið Napoli.

Milik er 22 ára og gerði 21 mark í 31 leik fyrir Ajax á síðasta tímabili og þar að auki hefur hann gert 11 mörk í 31 leik fyrir pólska landsliðið.

Kaupverðið er talið nema um 30 milljónum evra sem er þriðjungur þess sem Juventus greiddi fyrir Gonzalo Higuain.

Milik stóðst læknisskoðun í gærkvöldi og ætti að vera kynntur sem nýr leikmaður Napoli í dag eða kvöld.
Athugasemdir
banner