Pep Guardiola hefur staðfest að Samir Nasri mætti alltof þungur inn í undirbúningstímabil Manchester City.
Þeir leikmenn sem mættu of þungir fá ekki að æfa með aðalliðinu þar til þeir koma sér í form, og talið er að Yaya Toure og Sergio Agüero séu í svipaðri stöðu og Nasri.
Þeir leikmenn sem mættu of þungir fá ekki að æfa með aðalliðinu þar til þeir koma sér í form, og talið er að Yaya Toure og Sergio Agüero séu í svipaðri stöðu og Nasri.
Guardiola talaði ekki um þyngdina sem vandamál en viðurkenndi að franski miðjumaðurinn hafi mætt of þungur.
„Samir mætti aðeins of þungur en hann er allur að koma til. Hann er enn aðeins of þungur en hann ætti að vera klár á nokkrum vikum," sagði Pep.
„Ég get ekki kvartað yfir þessum leikmannahóp, stuðningsmenn Man City geta verið stoltir af leikmönnunum sínum. Þetta eru allt fagmenn fram í fingurgóma."
Athugasemdir