,,Við eigum mjög góða möguleika," segir Gunnar Borgþórsson þjálfari Selfyssinga um bikarúrslitaleikin gegn Stjörnunni á morgun.
,,Það hefur verið alltof löng bið í þennan leik. Við höfum beðið síðan að við fögnuðum sigri gegn Fylki."
Gríðarleg stemning er á Suðurlandi fyrir leiknum og Selfyssingar munu eiga fjölmarga stuðningsmenn í stúkunni á morgun.
,,Það verða sætaferðir frá öllum byggðarkjörnum á Suðurlandi liggur við og það verður stemning."
Gunnar var í jakkafötum þegar hann stýrði Valsstúlkum í bikarúrslitum 2011 og hann gæti dregið jakkafötin aftur fram núna.
,,Það getur vel verið. Ég þarf að finna mér stærri jakkaföt en við reddum því," sagði Gunnar léttur í bragði.
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir