Gunnar Guðmundsson var að vonum ánægður eftir 3-1 sigur sinna manna í fallbaráttuslag gegn KV í kvöld. Undirituðum þótti ekki mikið til leiksins koma en Gunnar var á öðru máli.
,,Ég er nú ekki alveg sammála þér þar, það voru nóg af færum í þessum leik, það var mikið undir og menn að fikra sig áfram á köflum og reyna að finna spilið en mér fannst þetta heldur betur fjörugt en auðvitað gríðarlega ánægður að fá þrjú stig í dag."

Hann spurður út í varnarleik sinna manna.
,,Ég var ánægður með þá, það sem við lögðum upp gekk að mestu leyti eftir og mér fannst varnarleikurinn góður, kV er náttúrulega búnir að skora töluvert af mörkum í sumar."
,,En ég var ánægður með varnarleikinn og að skora þrjú mörk, það er bara gott."
,,Við vorum ekkert að gera mikið úr þessum leik við tókum þessu bara eins og hverjum öðrum leik spennustigið var bara gott á liðinu, menn voru afslappaðir. En menn vita auðvitað af þessu en mér fannst við stýra spennustiginu mjög vel og undirbúa okkur vel fyrir þennan leik."
Viðtalið má sjá í heild sinni að ofan.
Athugasemdir