Heimild: Sky
QPR hefur fest kaup á Jack Robinson sem kemur frá Liverpool og er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við félagið.
Robinson verður 21 árs eftir nokkra daga og mun ekki spila með QPR á þessu tímabili, enda var hann strax lánaður til Huddersfield Town í Championship deildinni.
Robinson verður 21 árs eftir nokkra daga og mun ekki spila með QPR á þessu tímabili, enda var hann strax lánaður til Huddersfield Town í Championship deildinni.
,,Jack er hugsaður fyrir framtíðina. Hann er góður, ungur leikmaður og mun halda áfram að þroskast hjá Huddersfield," sagði Harry Redknapp.
,,Ég er viss um að honum mun ganga vel í Championship deildinni."
Athugasemdir