Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 29. ágúst 2014 12:43
Magnús Már Einarsson
Jordon Ibe til Derby (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Derby County hefur fengið kantmanninn Jordon Ibe á láni frá Liverpool.

Hinn 18 ára gamli Ibe þykir vera gríðarlega efnilegur en hann kom til Liverpool frá Wycombe í janúar 2012.

Ibe á þrjá aðalliðsleiki að baki með Liverpool en hann var einnig í láni hjá Birmingham síðari hlutann á síðasta tímabili.

Hann mun nú reyna að hjálpa Derby í Championship deildinni en liðið var hársbreidd frá sæti í ensku úrvalsdeildinni síðastliðið vor.
Athugasemdir
banner
banner
banner