Eftir óvænt tap gegn Bayer Leverkusen í fyrstu umferð þýsku úrvalsdeildarinnar kallar þjálfari Borussia Dortmund, Jurgen Klopp, eftir því að liðið komi til baka gegn Augsburg í kvöld og sýni sínar réttu hliðar.
SkjárSport sýnir leikinn í beinni klukkan 18:30.
SkjárSport sýnir leikinn í beinni klukkan 18:30.
„Við getum miklu betur en við sýndum í fyrsta leik en það sama á við um Augsburg," segir Klopp en Augsburg tapaði 2-0 fyrir Hoffenheim.
„Það er nauðsynlegt að við komum til baka í kvöld. Við stefnum á að valda mótherjum okkar það miklum vandræðum að þeir þurfa viku í viðbót til að jafna sig."
Klopp hvíldi menn í fyrsta leik en þar á meðal markvörðinn Roman Weidenfeller sem snýr aftur í rammann í kvöld.
Athugasemdir