banner
   fös 29. ágúst 2014 22:30
Brynjar Ingi Erluson
Ronaldo ekki í portúgalska landsliðshópnum
Mynd: Getty Images
Cristiano Ronaldo, leikmaður Real Madrid og portúgalska landsliðsins, er ekki í landsliðshópnum sem mætir Albaníu í fyrsta leik í undankeppni EM.

Ronaldo, sem er 29 ára gamall, hefur verið að glíma við meiðsli að undaförnu en spilaði þrátt fyrir það allan leikinn er Real Madrid sigraði Cordoba á dögunum þar sem hann skoraði meðal annars stórglæsilegt mark.

Bento, þjálfari portúgalska landsliðsins, ákvað að gefa Ronaldo hvíld fyrir leikinn gegn Albaníu en hann vill ekki taka neinar áhættur.

,,Þetta snýst um ástandið á honum. Þó svo hann hafi verið að spila reglulega þá getur hann ekki spilað þennan leik," sagði Bento.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner