Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 29. ágúst 2015 15:12
Ívan Guðjón Baldursson
1. deild kvenna: ÍA með öruggan sigur í úrslitakeppninni
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Fjarðabyggð 0 - 3 ÍA
0-1 Maren Leósdóttir ('45)
0-2 Megan Dunnigan ('50)
0-3 Emilía Halldórsdóttir ('51)

ÍA heimsótti Fjarðabyggð í fyrri leik liðanna í úrslitakeppni 1. deildar kvenna í dag.

Skagastúlkur unnu leikinn 3-0 og komu öll mörkin á sex mínútna kafla, eitt undir lok fyrri hálfleiks og tvö í upphafi þess síðari.

Maren Leósdóttir gerði fyrsta markið áður en Megan Dunnigan og Emilía Halldórsdóttir bættu tveimur mörkum við með skömmu millibili.

Spilað var á Norðfjarðarvellinum og mætast liðin í síðari leiknum á Akranesi á þriðjudaginn.
Athugasemdir
banner
banner
banner