„Þetta eru tvö góð lið og ég tel að við eigum góða möguleika á að vinna," segir Anna Björk Kristjánsdóttir varnarmaður Stjörnunnar um bikarúrsltaleikinn sem er framundan gegn Selfyssingum í dag klukkan 16:00.
„Þær eru snöggar fram á við og mikið sóknarlið. Við þurfum að passa það, spila sem heild og loka á þær. Þetta er gott lið með marga góða einstaklinga."
Möguleikar Stjörnnunnar á Íslandsmeistaratitlinum eru afar litlar en liðið vonast eftir að ná titli í dag.

„Það er mjög ólíklegt að Blikar séu að fara að tapa þessu og það myndi kveikja meira í okkur að fá þennan bikar heim. Stefnan er að sjálfsögðu sett á bikarinn."
Hér að ofan má sjá viðtalið í heild sinni.
Athugasemdir