Árni Kristinn Gunnarsson, fyrirliði Augnabliks var vonsvikinn eftir 1-0 gegn KFG á útivelli í dag.
Þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum 4. deildar karla. Heimamenn úr Garðabænum komust yfir strax á fyrstu mínútu leiksins og héldu þeirri forystu til loka.
Þetta var fyrri leikur liðanna í 8-liða úrslitum 4. deildar karla. Heimamenn úr Garðabænum komust yfir strax á fyrstu mínútu leiksins og héldu þeirri forystu til loka.
„Við vitum að þetta KFG lið er hörkulið sem við erum líka. Við töpuðum í dag en það er nóg eftir af þessu. Við eigum heimaleikinn eftir á grasi og við erum betri þar," sagði Árni Kristinn sem hefur trú á því að liðið getið snúið taflinu við í seinni leiknum.
„Þetta var ekki okkar besti leikur, þetta var reyndar tvímælalaust besta lið sem við höfum mætt hingað til. Engu að síður teljum við okkur vera betri og eigum að geta spilað betur en þetta," sagði Árni Kristinn.
Viðtalið í heild sinni er hægt að sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir