Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 29. ágúst 2015 15:39
Ívan Guðjón Baldursson
Byrjunarlið Spurs og Everton: Stones mætir Kane
Mynd: Getty Images
Ryan Mason er í byrjunarliði Tottenham Hotspur sem tekur á móti Everton í lokaleik dagsins í enska botlanum.

Mason spilar í stöðu Christian Eriksen og myndar vinnusama og kröftuga miðju ásamt Nabil Bentaleb og Eric Dier.

Harry Kane og Romelu Lukaku leiða sóknarlínurnar og er Arouna Kone í byrjunarliði Everton enda hefur hann byrjað tímabilið af krafti.

John Stones er í byrjunarliði Everton þrátt fyrir mikla dramatík síðustu vikur þar sem leikmaðurinn er sagður hafa beðið um sölu frá félaginu og var þeirri beiðni synjað.

Tottenham er með tvö stig eftir þrjár umferðir og Everton er með fjögur.

Tottenham: Lloris; Walker, Alderweireld, Vertonghen, Rose; Bentaleb, Dier, Chadli, Mason, Dembélé; Kane

Everton: Howard; Coleman, Stones, Jagielka, Oviedo; Barry, Cleverley, McCarthy, Barkley; Kone, Lukaku
Athugasemdir
banner
banner
banner