Ólafur Þór Guðbjörnsson, þjálfari Stjörnunnar, var að vonum ánægður eftir 2-1 sigur sinna stúlkna í úrslitaleik Borgunarbikarsins gegn Selfossi í dag.
Stjörnustúlkur lentu 1-0 undir á Laugardalsvelli en komu til baka og hömpuðu bikarnum.
Stjörnustúlkur lentu 1-0 undir á Laugardalsvelli en komu til baka og hömpuðu bikarnum.
Lestu um leikinn: Stjarnan 2 - 1 Selfoss
„Þetta var frábært og mjög skemmtilegur endir á þessum frábæra leik," sagði Ólafur Þór við Fótbolta.net eftir leikinn áður en Anna Björk Kristjánsdóttir varnarmaður Stjörnunnar hellti yfir hann vatni.
„Þetta er árlegt," sagði Ólafur hress og hrósaði sínum stúlkum fyrir flottan leik.
„Auðvitað kemur sá fiðringur í magann en ég hef bara mikla trú á þessu liði og þú sást hvað þær höfðu mikla trú á sér, þær héldu áfram og héldu áfram. Við erum búin að fá þrjú mörk fram að þessum leik á móti okkur á móti Selfossi og öll eftir föst atriði. Það var alveg mátulegt að við myndum svara fyrir okkur."
Athugasemdir