lau 29. ágúst 2015 23:40
Elvar Geir Magnússon
Sjáðu Futsal mörk: Ólsarar veittu Hamborg harða keppni
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon
Það voru mörg skemmtileg tilþrif sem sáust í liðinni viku í undanriðlinum í Futsal sem fram fór í Ólafsvík en allir leikirnir voru sýndir beint á SportTv.

Einn allra skemmtilegasti leikur mótsins var lokaleikurinn þegar heimamenn í Víkingi Ólafsvík mættu sigurvegurum riðilsins, Þýskalandsmeisturum Hamborg Panthers.

Smelltu hér til að sjá mörkin úr leiknum

Hroje Tokic og Kristófer Eggertsson skoruðu mörk Ólsara í leiknum, sá síðarnefndi skoraði tvívegis. Fyrra mark hans var eitt glæsilegasta mark riðilsins og má sjá í tenglinum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner