Belgíski varnarmaðurinn Thomas Vermaelen, fyrrum leikmaður Arsenal, skoraði sigurmarkið fyrir Barcelona þegar liðið vann Malaga 1-0.
Börsungar voru talsvert betri í leiknum en náðu aðeins að skora eitt mark. Liðið átti að fá vítaspyrnu í fyrri hálfleiknum þegar brotið var á Luis Suarez en ekkert var dæmt.
Börsungar hafa unnið báða leiki sína í spænsku deildinni með markatölunni 1-0 en Malaga er með eitt stig.
Í dag varð markalaust jafntefli þegar Real Sociedad mætti Sporting Gijon. Bæði þessi lið hafa tvö stig.
Barcelona 1 - 0 Malaga
1-0 Thomas Vermaelen ('73 )
Real Sociedad 0 - 0 Sporting Gijon
Athugasemdir