Sergio Aguero spilar ekki með Argentínu í komandi landsleikjum þar sem hann er að glíma við meiðsli í kálfa.
Argentínska knattspyrnusambandið segir að Aguero hafi meiðst í 3-1 sigrinum gegn West Ham í gær.
Argentínska knattspyrnusambandið segir að Aguero hafi meiðst í 3-1 sigrinum gegn West Ham í gær.
Ekki hefur verið gefið út hvenær hann snýr aftur en hann gæti verið á leið í leikbann fyrir að gefa Winston Reid olnbogaskot i gær.
Argentína mætir Úrúgvæ á föstudag og Venesúela 7. september. Liðið er í þriðja sæti undankeppninnar eftir þrjá sigurleiki af sex.
Athugasemdir