Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 29. ágúst 2016 11:50
Magnús Már Einarsson
Chambers á leið til Middlesbrough
Mynd: Getty Images
Arsenal hefur samþykkt að senda varnarmanninn Calum Chambers til Middesbrough á láni. Sky Sports greinir frá þessu.

Chamber hefur verið orðaður við nokkur félög að undanförnu en samkvæmt frétt Sky hefur Boro nú landað honum.

Arsenal keypti hinn 21 árs gamla Chambers frá Southampton fyrir tveimur árum síðan.

Chambers var í byrjunarliði Arsenal í 4-3 tapinu gegn Liverpool í fyrstu umferðinni en hann skoraði meðal annars í leiknum.

Chambers hefur hins vegar ekki spilað í síðustu tveimur leikjum og Arsene Wenger hefur ákveðið að senda hann á lán.
Athugasemdir
banner
banner