Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mán 29. ágúst 2016 17:30
Elvar Geir Magnússon
„Þessi krakki er gjörsamlega geggjaður"
Ousmane Dembele.
Ousmane Dembele.
Mynd: Getty Images
„Þessi Dembele krakki er ótrúlegur," sagði Leon Balogun, varnarmaður Mainz, eftir að lið hans tapaði gegn Dortmund í þýsku deildinni á laugardaginn.

Balogun átti í miklum vandræðum með hinn 19 ára Ousmane Dembele í leiknum, Dortmund keypti þennan stórefnilega strák fyrir 15 milljónir evra frá Rennes í lok síðasta tímabils.

„Hann er gjörsamlega geggjaður, alveg ótrúlegur. Hvað er hann gamall, 18, 19? Hann er svo yfirvegaður og með gríðarlega tækni, hraðinn hjá honum er ótrúlegur. Til hamingju Dortmund að hafa fengið svona leikmann."

„Ég held að þeir muni upplifa mikla gleði með honum. Hann á bjarta framtíð fyrir sér."

Sjáðu viðtalið við Balogun hér að neðan:



Athugasemdir
banner
banner
banner