Heimild: Vísir
Markahrókur íslenska landsliðsins, Kolbeinn Sigþórsson, er á leið til Galatasaray í Tyrklandi samkvæmt fjölmiðlum þar í landi. Vísir greinir frá.
Um er að ræða lánssamning út tímabilið frá Nantes í Frakklandi en talað er um að Kolbeinn komi til Istanbúl á morgun.
Kolbeinn gekk til við Nantes fyrir síðasta tímabil en skoraði aðeins þrjú mörk í 26 deildarleikjum fyrir franska liðið síðasta tímabil og fékk töluverða gagnrýni.
Galatasary er sigursælasta lið Tyrklands en olli miklum vonbrigðum á síðasta tímabili þar sem liðið endaði í 6. sæti og komst því ekki í Evrópukeppni.
Athugasemdir