mán 29. ágúst 2016 08:00
Ívan Guðjón Baldursson
Raiola: Mourinho reyndi að fá Pogba til Chelsea í fyrra
Mynd: Getty Images
Mino Raiola, umboðsmaður Paul Pogba, segir að Jose Mourinho hafi reynt að fá Pogba til Chelsea á síðasta tímabili.

Mourinho tókst það ekki en í sumar tók hann við Manchester United og náði að tryggja sér þjónustu Pogba fyrir metfé, eða 89 milljónir punda.

„Mourinho reyndi að fá Pogba til Chelsea síðasta sumar en það var ekki rétt tímasetning," sagði Raiola.

„Zidane vildi fá hann til Real Madrid en það voru fimm eða sex önnur félög á höttunum eftir honum.

„Á endanum var það Manchester United sem tryggði sér krafta hans og er orðið að betra liði fyrir vikið, sem er annað en Real Madrid getur sagt."

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner