Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 29. ágúst 2016 11:22
Magnús Már Einarsson
Southampton kaupir Boufal á metfé (Staðfest)
Sofiane Boufal.
Sofiane Boufal.
Mynd: Southampton
Southampton hefur keypt miðjumanninn Sofiane Boufal frá Lille á 16 milljónir punda.

Boufal er þar með dýrasti leikmaðurinn í sögu Southampton en fyrra metið átti Dani Osvaldo sem kostaði 15 milljónir punda árið 2013.

Boufal er 22 ára gamall en hann kemur frá Marokkó. Hann skrifaði undir fimm ára samning við Southampton.

Á síðasta tímabili skoraði hann ellefu mörk með Lille í frönsku úrvalsdeildinni.

„Ég tel að þetta félag sé best fyrir mig til að halda áfram að bæta mig sem fótboltamaður," sagði Boufal.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner