Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mán 29. ágúst 2016 09:41
Magnús Már Einarsson
Sunderland vill fá Joe Hart á láni
Mynd: Getty Images
Sunderland hefur áhuga á að fá markvörðinn Joe Hart á láni frá Manchester City samkvæmt frétt Sky.

Manchester City keypti Claudio Bravo fyrir helgi og þar áður var Hart kominn á eftir Willy Caballero í röðinni.

Hart er í kapphlaupi við tímann við að finna nýtt félag áður en félagaskiptaglugginn lokar á miðvikudag.

Sunderland getur ekki boðið Hart jafn há laun og City og óvíst er hvort að landsliðsmarkvörðurinn vilji fara í fallbaráttuna á Englandi.

Sky segir að Hart vilji reyna að finna félag í Meistaradeildinni en fá félög hafa þó sýnt áhuga undanfarna daga.
Athugasemdir
banner
banner