FC Santa Claus vann sér um helgina sæti í finnsku C-deildinni en liðið hefur skorað 104 mörk í 20 leikjum í D-deildinni á þessu tímabili.
Santa Claus er frá Lapplandi en félagið var stofnað árið 1993.
Jólasveinninn er oft sagður vera frá Lapplandi og það útskýrir nafn liðsins.
Santa Claus er frá Lapplandi en félagið var stofnað árið 1993.
Jólasveinninn er oft sagður vera frá Lapplandi og það útskýrir nafn liðsins.
Yfirleitt snjóar stanslaust í Lapplandi frá október og fram í apríl en menn þar á bæ láta það ekki á sig fá.
,,Við erum ánægðir með að geta sýnt fólki að við erum í þessu upp á gamanið en það er líka alvara hjá okkur eins og sést á þessum góðu úrslitum," sagði Jouni Toyras talsmaður FC Santa Claus.
Athugasemdir