Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
Bjarni Jó: Nýttum færin okkar illa
Gunnar Magnús: Alsæll þrátt fyrir að það hafi endað í jafntefli
Ólafur Kristjáns: Ekki hægt að gera neitt við því núna
Kristján Guðmunds: Munum rífa okkur í gang eftir þetta
John Andrews: Gæti ekki verið stoltari
Nik: Vigdís hefur staðið sig vel sem framherji
Glenn: Komum hingað með því hugarfari að vinna leikinn
Vigdís Lilja: Ætla að spila frammi í sumar og skora eins mikið og ég get
Sáttur Arnar Gunnlaugs: Erum að senda ágæt skilaboð til liðanna í deildinni
Höskuldur brattur eftir leik: Maður verður að jafna sig hratt á þessu
Elskar stóru leikina - „Vona að fólk viti að þeir kitla mig.“
Finnst línan vera óskýr - „Þeir máttu það í dag“
Alltaf skemmtilegustu leikirnir - „Ég er með eitraða hægri löpp"
Hinrik Harðar: Mikil ábyrgð að vera kominn í ÍA
Rúnar Páll: Það er það sem Fylkir gengur út á
Jón Þór: Vil byrja mótið 1. mars
Amanda: Markmiðið er að fara aftur út en fókusinn er á Val
Jóhann Kristinn: Mér fannst við ekki komast yfir spennuna
Haddi: Meira svekktur með frammistöðuna en að hafa fengið á okkur mark
   mán 29. september 2014 14:15
Elvar Geir Magnússon
Leikmaður ársins í 2. deild: Ekki hægt að biðja um betra sumar
Brynjar Jónasson.
Brynjar Jónasson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Brynjar Jónasson úr Fjarðabyggð var á föstudag útnefndur bæði leikmaður ársins og efnilegastur í 2. deild karla. Þá fékk hann einnig gullskóinn sem markakóngur.

Brynjar stimplaði sig rækilega til leiks á fyrsta ári í meistaraflokki. Eftir að hafa leikið með FH í yngri flokkunum gekk hann til liðs við Fjarðabyggð síðasta vetur. Brynjar fór á kostum í framlínu Fjarðabyggðar í sumar en hann skoraði 19 mörk og var markahæstur í deildinni.

Sjá einnig:
Lið ársins og bestu menn í 1. deild 2014
Lið ársins og bestu menn í 2. deild 2014

„Ég held að ég hefði ekki getað beðið um betra sumar. Það er Fjarðabyggð að þakka að ég fékk þetta tækifæri," sagði Brynjar í viðtali.

„Þetta er allt annað en að spila í 2. flokki, betri fótbolti og meiri harka. Það var frábært fyrir austan. Við bjuggum saman félagarnir og elduðum. Þetta var veisla."

Brynjar er samningslaus eftir tímabilið og segir ekki ljóst hvað tekur við en hann er opinn fyrir því að spila með Fjarðabyggð í 1. deildinni næsta sumar. Viðtalið má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner